Mánudagur, 28. ágúst 2017
Hófleg launahækkun eða verðbólga
Laun eru há á Íslandi í dag, bæði í sögulegu samhengi og alþjóðlegum samanburði, samkvæmt greiningu Ólafs Margeirssonar hagfræðings. Á komandi vetri eru samningar margra hópa lausir. Valið stendur á milli hóflegra launahækkana eða verðbólgu, þegar innlendum kostnaði yrði ýtt út í verðlagið og gengið lækkaði.
Þótt samstarf aðila á vinnumarkaði, SALEK, lifi enn að nafninu til er góðæri síðustu ára illa nýtt í umræðu um réttláta skiptingu launa. Hvað á forstjóri að hafa í laun miðað við meðallaun í viðkomandi fyrirtæki? Hvert á mánaðarkaup kennara að vera í samanburði við meðallaun ASÍ-félaga?
Spurningum af þessu tagi er ekki svarað, spurningarnar eru ekki einu sinni settar fram. Tölurnar til að svara liggja fyrir. En enginn þorir að spyrja.
Athugasemdir
Eftir hofdinu dansa limirnir. Althingi setti hversu hátt á ad
krefjast med thetta arfavitlausa kjararád sl. haust og
allir thingmenn thádu svo gott sem thegjandi og hljódalaust.
Einn haettulegasti afleikur sem gerdur hefur verid rétt
fyrir lausa kjarasamninga.
Thessi ríkisstjórn hefdi getad komid í veg fyrir
thessa arfavitlausu gerd,en gerdi ekki og vegna thess
mun allt loga thegar farid verdur ad semja.
Sigurður Kristján Hjaltested, 28.8.2017 kl. 07:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.