Föstudagur, 25. ágúst 2017
Dauðinn er ekki geðveiki
Við sjúkdómavæddum fæðingar og fluttum þungaðar konur á spítala þegar þær ólu börn. Í þúsund ár fæddust íslensk börn heima hjá móður sinni.
Við deyjum núna helst á sjúkrahúsum eða elliheimilum. Sumir deyja af slysförum, einhverjir falla fyrir eigin hendi. Áður dó fólk heima hjá sér eða í vinnunni, sem oft var sami staðurinn.
Sjúkdómavæðing dauða og fæðingar fær okkur til að halda að upphaf og endir lífs sé afbrigðilegur, eitthvað óheilbrigt.
En, sum sé, án dauða engin fæðing. Lífið er hringrás.
Lifið heil.
Athugasemdir
Ég trúi því að sálartetrið fari alltaf eitthvað uppá við í þroska en ekki bara hring eftir hring:
http://thjodarskutan.blog.is/blog/gudspekifelag_s/entry/1766563/
Í hvaða vídd/ á hvaða umræðuplani er fólk á?
http://thjodarskutan.blog.is/blog/gudspekifelag_s/?offset=20
Jón Þórhallsson, 25.8.2017 kl. 21:12
Mér dauðbrá er þetta heilbrigt? -
Helga Kristjánsdóttir, 26.8.2017 kl. 02:08
Það var reyndar þessi slóð sem að átti að fara í loftið:
http://thjodarskutan.blog.is/blog/gudspekifelag_s/entry/2183977/
Jón Þórhallsson, 26.8.2017 kl. 09:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.