Mánudagur, 7. ágúst 2017
4 valdablokkir í miđausturlöndum
Stjórnvöld í Ísrael taka undir harđlínustefnu Sádí-Arabíu gegn fjölmiđlinum Al Jazeera. Ţetta gerist í beinu framhaldi af tilraunum til ađ efna til óeirđa vegna deilunnar um Musterishćđ, sem er bćđi gyđingum og múslímum heilög.
Jerusalem Post birtir fréttaskýringu sem skilgreinir fjórar valdablokkir í miđausturlöndum. Ţessar valdablokkir berjast um forrćđiđ í heimshlutanum. Hćgt er ađ skilja stađbundin átök út frá valdablokkunum.
Sú fyrsta er Íran, sem er forysturíki shía-múslíma. Önnur er Ríki íslams, en ţađ eru herskáir súnní-múslímar er stefna ađ trúarríki. Ţriđja valdablokkin er Múslímska brćđralagiđ međ ríki eins og Tyrkland, Hamas-hryđjuverkasamtökin og Katar. Fjórđa blokkin er stöđugleikaríkin: Egyptaland, Jórdanía, Sádí-Arabía og Ísrael.
Stöđugleikaríkin tóna niđur deiluna um Musterishćđ og er umhugađ um ađ halda friđinn í heimshlutanum enda getur ófriđur utan landamćranna óđara breyst í innanlandsátök.
Múslímska bandalagiđ, undir forystu Tyrkja, vildi átök. Erdogan forseti hvatti til óeirđa undir trúarlegum formerkjum. Hann lítur á Tyrkland sem upphaf ađ endureisn kalífaríkis múslíma.
Ríki íslams var ekki ađili ađ deilunni um Musterishćđ, ţeir eiga nóg međ sitt í borgarastríđinu í Sýrlandi og Írak.
Stöđugleikaríkin virđast hafa náđ ţví ađ kćla deiluna í ţessari umferđ. Og Ísrael og Sádí-Arabía eru samstíga í ađ koma Al Jazeera fyrir kattarnef.
Vilja leggja niđur Al Jazeera | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Er ekki Al-Jaseera í palestínu?
Jósef Smári Ásmundsson, 7.8.2017 kl. 11:12
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.