Fimmtudagur, 20. júlí 2017
Trump er vinsælli en Hillary Clinton
Donald Trump Bandaríkjaforseti mælist með 41 prósent á vinsældarvog Bloomberg en Hillary Clinton, sem tapaði fyrir Trump sl. nóvember, fær 39 prósent á sama mælikvarða.
Í Guardian eru dregnar ályktanir af þessari staðreynd. Ein þeirra er að frjálslynd vinstristefna í anda Clinton-hjónanna, Obama fyrrverandi forseta og Tony Blair fyrrv. forsætisráherra Breta, sé steindauð.
Frjálslynda vinstrið, stundum kölluð ,,þriðja leiðin", sem Samfylking, Viðreisn og Björt framtíð tilheyra hér á landi, er misheppnuð stjórnmálastefna á alþjóðavísu. Enda er Trump forseti en Hillary bitur stjórnmálamaður sem kennir öllum öðrum en sjálfum sér um ógöngurnar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.