Mánudagur, 17. júlí 2017
Trump-vinsældir, falsfréttir og menningarstríð
Venja er að nýkjörnir forsetar Bandaríkjanna njóti vafans og fái starfsfrið fyrstu þrjá til sex mánuði í embætti. Trump fékk enga brúðkaupsdaga. Ástæðan er að í Bandaríkjunum geisar menningarstríð.
Í megindráttum stendur menningarstríðið á milli tveggja fylkinga, sem þó eru innbyrðis giska fjölskrúðugar; frjálslyndir vinstrimenn annars vegar og hins vegar íhaldsmenn. Þeir fyrrnefndu eru hallir undir fjölmenningu, alþjóðahyggju og að Bandaríkin heyji stríð á fjarlægum slóðum í nafni hugsjóna. Íhaldsmenn hafna fjölmenningu, eru tortryggnir á alþjóðavæðingu og velja raunsæi í stað hugsjóna í stríðsrekstri.
Strax við kosningasigur Trump, sem var óvæntur, gerðu fjölmiðlar því skóna að Rússar stæðu að baki og/eða að önnur brögð væru í tafli.
Falsfréttaiðnaðurinn, sem BBC segir viðvarandi plágu, heldur á lofti hverskyns samsæriskenningum um að Trump sé án umboðs og í raun landráðamaður - leiksoppur Pútín Rússlandsforseta.
Meðalvinsældir Bandaríkjaforseta eru 55 prósent. George Bush eldri mældist með 29 prósent vinsældir 1992. Í ljósi kringumstæðna er Trump í þokkalegum málum með 36 prósent.
![]() |
Minnstu vinsældir Bandaríkjaforseta í 70 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Covfefe
Wilhelm Emilsson, 17.7.2017 kl. 17:37
The King is dead! .... long live the king!
Mér er spurn, hver heldur að framtíð þessarar veraldar liggi í höndum væluskjóða vinstri manna í bandaríkjunum. Eru kommúnistar í bandaríkjunum, eitthvað betri en kommúnistar annars staðar ...
Ætli það ... sömu fíflin, og hafa alltaf verið og eru að setja bandaríkin í skítasvað ...
Enginn ... og ég meina ENGINN er ánægðari en Pútin yfir því hvernig kommúnistarnir láta í Bandaríkjunum. Það getur aðeins orðið EIN, og AÐEINS EIN niðurstaða úr þvi ... og það er fall bandaríkjanna.
Þannig, að ef Pútin stendur á bak við eitthvað ... þá er það Hillary og vinstra pakkið.
Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 17.7.2017 kl. 19:04
Akkurat Bjarne síst betri þar og minna á Skara og þý hans í Lion King.- Rúv var með lægri vinsældatölur í fréttunum í kvöld ég hló ; enginn skal vanmeta Bandaríkin.
Helga Kristjánsdóttir, 17.7.2017 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.