Miđvikudagur, 12. júlí 2017
Trump er póstmódern - vinstrimađur
Gáfuritiđ New Republic segir Trump fyrsta póstmóderníska forsetann. Bođskapur póstmódernisma er ađ sannleikurinn sé ekki til; ađeins sjónarhorn. Mitt sjónarhorn er jafngilt og ţitt. Af ţví leiđir eru hugtökin satt og ósatt merkingarlaus.
Ritstjóri New Republic heimfćrir póstmódernisma upp á Trump og hugtök nátengd honum, s.s. falsfréttir og valkvćđar stađreyndir.
Vandamáliđ er ţetta: Trump er hćgrimađur en póstmódernismi í pólitík er vinstristefna. Póstmódernísk pólitík verđur til í framhaldi af uppgjöf vinstrimanna á vísindalegum sósíalisma Marx og Engels, eins og Stephen Hicks útskýrir í stuttri rćmu.
Ef greining New Republic heldur máli verđur ađ líta á Trump sem áhrínisorđ póstmódernisma. Og vandast ţá máliđ. Hvernig á ađ afbyggja Trump?
Ágćtis byrjun vćri ađ innleiđa á ný inn í pólitíska umrćđu hugtökin sannindi og ósannindi. Heimspekingurinn Harry G. Frankfurt skrifađi tvo ritlinga áratug áđur en Trump varđ forseti, On bullshit og On truth.
Ritlingarnir tveir útskýra hvernig vađall annars vegar og hins vegar misţyrming á sannleikshugtakinu leiđa til póstmódernískra fyrirbćra eins og Trump.
Heimurinn verđur óskiljanlegur ef viđ hćttum ađ ađgreina sannindi og lygi. Hvert barn veit ţetta ţótt stjórnmálaumrćđan gefi annađ til kynna.
![]() |
Trump vissi ekki af fundinum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Eitthvađ ţarftu ađ lćra betur um hugtakanotkun. Póst-módernismi er andsvar viđ módernisma sem er ţversagnakennd tvíhyggja. Ţannig vildi póst-módernismi meina ađ ţađ vćru fleiri sjónarhorn á hlutum en sannleikur/ekki sannleikur. Ţađ sem póst-módernismar gleymdu var ađ taka afstöđu ţví vissulega er lífiđ flóknara en svo ađ einn sannleikur sé til. Póst-módernismar eru syndandi selir sem vita ekkert hvert ţeir eru ađ fara og ţví góđ spurning hvort ţađ eigi nokkuđ viđ um Trump.
Lýsing ţín á múslimum er einmitt runninn úr módernisma ţar sem einn sannleikur er réttur. Ríki islams lagđi út frá ţeim grunni. Ertu viss um ađ viljir aftur módernisma?
Rúnar Már Bragason, 12.7.2017 kl. 12:18
Rúnar Már, ég nota hugtakiđ póstmódernismi á sama hátt og Jeet Heer á New Republic, Stephen Hicks í rćmunni sem ég vísa á og Harry G. Frankfurt í bókunum sem vitnađ er til.
Lýsing mín á múslímum byggir á greiningu á vestrćnni menningu annars vegar og hins vegar trúarmenningu múslíma. Bakland ţeirrar greiningar er upplýsingin.
Sjálfsagt ćtti ég ađ ađ lesa meira, bćđi um póstmódernisma, múslíma og annađ. En ţú ćttir ađ temja ţér ađ vísa í heimildir fyrir stađhćfingum sem ţú setur fram.
Páll Vilhjálmsson, 12.7.2017 kl. 12:48
Sammála ađ mikilvćgt ađ vitna í heimildir og get nefnt Writing Culture: The Poetics and Politics of Ethnography eftir James Clifford og George E. Marcus um skilgeiningar á póst-módernisma. Annađ byggi ég á minni greiningu á hugtökunum.
Greinin í New Republic finnst mér vera međ sama skilning og ég legg út frá en kjarnaspurningin er ţessi: "But there’s a different way to look at Trump as a postmodern president. Paradoxically, even as Trump exploits today’s media, his politics of nostalgia show that his own followers want to escape the postmodern world." Trump nýtir sér póst-módernisma til dćmis međ Twitter and senda út misvísandi skilabođ en eftir stendur spurningin hver er tilgangur hans?
Rúnar Már Bragason, 12.7.2017 kl. 14:17
Fjölmiđlar fylgdu tíđaranda elítustéttarinnar sem fyrir löngu var orđin póst-módernískur áđur en Trump kom til. Trump var kosinn vegna ţess ađ hann bauđ upp á afturhvarf til gilda sem almenningur skildi. Hvort Trump er póst-módernískur er erfitt ađ segja en hann notar póst-modernískar ađferđir í baráttu sinni gegn fenjafólkinu og fjölmiđlum.
Ragnhildur Kolka, 12.7.2017 kl. 15:09
Ég var á undan...:)
https://stundin.is/blogg/gunnarh/essvegna-er-donald-trump-fyrsti-post-moderniski-forseti-bandarikjanna/
Gunnar Hólmsteinn Ársćlsson, 14.7.2017 kl. 23:11
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.