Fimmtudagur, 18. maí 2017
Auglýsingasalinn og fréttamaðurinn
Athugasemd Eiríks Jónssonar um Kastljósviðtal RÚV við Ólaf Ólafsson auðmenn lýtur að hæfi fréttamanna til að gegna skyldum sínum.
Fréttamenn, ekki síst RÚV-arar, gefa sig út fyrir að vera fulltrúar almennings og hafnir yfir hagsmunaárekstra.
Á fjölmiðlum er almenn regla að aðskilja auglýsingadeildir og ritstjórn. Ástæðan er auglýsingafólk selur fjársterkum aðilum aðgang að almenningi á meðan hlutverk ritstjórna er að veita þeim fjársterku aðhald, t.d. með gagnrýnni umfjöllun.
Í samskiptum auðmanna við fjölmiðla er alþekkt að keyptar séu auglýsingar sem birtast í formi frétta. Og fréttaauglýsingin er ekki endilega keypt á þeim miðli þar sem hún birtist.
Athugasemdir
Afsakið, en þarf ekki að útskýra það nánar hvaða auglýsingu Ólafur Ólafsson var að kaupa fyrir annan fjölmiðil en RÚV með því koma í viðtal eins og við aðra fjölmiðla?
Var hann að kaupa auglýsingu fyrir Fréttatímann, sem er orðinn gjaldþrota?
Fjölmiðlar ræddu við Ólaf meira og minna og á að skilja það svo, að af því að Ólafur samþykkti að tala við þá, hafi fjölmiðlarnir gerst berir að brotum á fréttareglum með því að sauma að honum?
Viðtöl geta ekki farið fram nema að sá, sem rætt er við, samþykki það.
Ómar Ragnarsson, 19.5.2017 kl. 00:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.