Sunnudagur, 23. apríl 2017
Frosti, Ann Coulter og frjálslyndur fasismi
Frosti Logason og Ann Coulter virðast ekki margt sameiginlegt, nema kannski áhuga á fallegum konum. En bæði andæfa þau, hvort með sínum hætti, sjálfhverfustjórnmálum sem á ensku kallast ,,identity-politics".
Frosti skrifar í Fréttablaðið, sjá endursögn Eyjunnar, um sjálfhverfustjórnmál:
Málfrelsið er úrelt afsprengi feðraveldis. Við afnemum það fyrir fólk sem við höfum ákveðið að þarfnist sérstakrar verndar. Við trúum ekki á samræður og rök, sumir mega einfaldlega ekki tjá sig.
Ann Coulter fær ekki að tala í Berkeley-háskólanum sökum þess að hún er með rangar skoðanir að dómi sjálfhverfusinna, sem þola ekki að heyra þær.
Sjálfhverfustjórnmál ganga út á að óþol sumra fyrir skoðunum annarra sé rétthærri en tjáningarfrelsið. Sjálfhverfusinnar búa til hugtök eins og ,,hatursorðræða" og efna til ofsókna gegn einstaklingum með rangar skoðanir.
Rökleg afleiðing sjálfhverfustjórnmála er eins og til er stofnað, hugtakamótsögn: frjálslyndur fasismi.
![]() |
Kæra fái Ann Coulter ekki að mæta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Í raun má taka "frjálslyndið" út úr hugtakinu og kalla þetta bara nýfasisma, því það er ekkert frjálslynt við sjálfhverustjórnmál.
Ragnhildur Kolka, 23.4.2017 kl. 13:24
Ertu viss um að Frosti sé á móti málfrelsi? Er ekki einhver séns að þessi orð séu kaldhæðni?
Mofi, 23.4.2017 kl. 18:46
Ég skil orð Frosta þannig að hann andæfi takmörkun málfrelsins í þágu þeirra sem þola ekki skoðanir annarra.
Fasismi er vitanlega aldrei frjálslyndur. En þegar frjálslyndir vinstrimenn taka upp fasíska orðræðu, sbr. að brennimerkja tilteknar skoðanir sem ,,hatursorðræðu", er hægt að tala frjálslyndan fasisma. Meint frjálslyndi er sem sagt fasismi í sauðagæru.
Páll Vilhjálmsson, 23.4.2017 kl. 19:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.