Mánudagur, 27. febrúar 2017
Falsfrétt Viðreisnar um ESB-aðild Íslands
Varaformaður Viðreisnar og fyrrum starfsmaður Evrópustofu, Jóna Sólveig Elínardóttir þingmaður, er aðalheimildin fyrir frétt Washington Times um að Ísland sé á leið inn í Evrópusambandið.
Í fréttinni segir Jóna Sólveig að áhrif Íslands á alþjóðavettvangi aukist við inngöngu og stjórnun gjaldmiðilsins, sem kallaður er ,,crown", verði styrkari.
Falsfréttir af þessu tagi spilla fyrir íslenskum hagsmunum á alþjóðavettvangi. Þjóð sem talin er á leið inn í ónýtt Evrópusamband er meðhöndluð eins og henni sé stjórnað af dómgreindarlausum kjánum.
Athugasemdir
Nú ættum við hin að standa gegn þessari falsfrétt og hafa samband við minnst Washington Times. Það er niðurlægjandi og óþolandi að vera með þennan landsöluflokk í ríkisstjórn.
Elle_, 27.2.2017 kl. 20:10
Sæl elskuleg baráttu vinkona! Situr óvinurinn enn fyrir okkur? Á þessari stundu er ég til alls tilbúin. Þetta óvenjulega fannfergi og hömlurnar sem það olli minntu mig sterklega á hugdirfsku og seiglu Íslendinga. Ég er rétt búin að áræða að hlusta á fréttir fjölmiðla sem teljast ríkisins,þegar Viðreisnarforinginn sem ólmur vill okkur í esb,fékk mig til að leggja við hlustirnar.> Mildin ein leggur til varkárni við sölu á Ísl.bönkunum! Heyrðirðu nokkuð glingo,þegar gamli peningakassinn var opnaður,þetta gerir ??? Við/þið ,þar sé ég þig mín kæra talandi og skrifandi amrísku eins og innfædd.
Helga Kristjánsdóttir, 27.2.2017 kl. 21:38
Eins og infædd, Helga?? Hihi. Skil bara ekkert í að þessi flokkur hafi komist í ríkisstjórn með enga getu, ekkert traust, ekki neitt nema fals.
Elle_, 27.2.2017 kl. 21:49
Yes dear! Hringja í Washington Times.
Ríkisstjórnin varð til vegna ragmennsku VG.stjórnar eða mótbárum innanflokks, gróflega álitið.
Helga Kristjánsdóttir, 27.2.2017 kl. 23:02
Öfgakrötum verður ekki kápa úr því klæðinu...
Guðmundur Böðvarsson, 28.2.2017 kl. 08:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.