Fimmtudagur, 16. febrúar 2017
Er hægt að gúggla sig til mennta?
Menntun var einu sinni að þýða latínu og grísku yfir íslensku á Bessastöðum en ensku í Oxford. Að auki lærðu nemendur ljóð utanbókar og kannski eitthvað smávegis í stærðfræði og stjarnvísindum. Með þennan grunn börðust Íslendingar til sjálfstæðis en Englendingar urðu heimsveldi.
Lýðræðisvæðing skólamenntunar á síðustu öld breytti inntaki hennar. Markmiðið var að koma sem flestum í gegnum skóla en ekki höfðu allir smekk fyrir fornmenntum og fagurbókmenntum. Sumir prjónuðu sig í gegnum skóla. Sígild menntun lét á sjá.
Eftir netvæðingu er þekkingin er hvers manns fingrum í gegnum leitarvélar eins og google. Skólakunnátta er lítils virði í samanburði.
Tvennt lærir maður þó ekki á google, sjálfsaga og sköpun. Að þýða texta á einu tungumáli yfir á annað krefst ögunar og sköpunargáfu.
Svarið við spurningunni í fyrirsögn er nei, við gúgglum okkur ekki til mennta.
Forstjóri Google svaraði sjö ára stúlku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.