Þriðjudagur, 22. nóvember 2016
Flóttamenn með flugvélum - séríslenskt vandamál
Í ESB-ríkjum er í gildi reglugerð 2001/51/EC sem gerir flugfélög fjárhagslega ábyrg fyrir flóttamönnum sem fá ekki stöðu hælisleitenda. Flugfélög neita þess vegna að flytja farþega frá miðausturlöndum og Afríku sem ekki eru með vegabréfsáritun.
Flugfar frá Afríku og miðausturlöndum kostar 300 til 400 evrur. Þýska útgáfan FAZ segir flóttamenn borga 7000 evrur og meira fyrir að komast í manndrápsfleytur yfir Miðjarðarhaf. Þótt krafist sé að reglugerð Evrópusambandsins, um fjárhagslega ábyrgð flugfélaga á flóttamönnum sé afnumin, eru engar líkur á því að það verði gert.
Evrópusambandið hefur ekki minnsta áhuga á að gera þetta séríslenska vandamál, flóttamenn með flugvélum, að sínu.
Hópur hælisleitenda til landsins í gær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ertu að leggja það til að við göngum í ESB?
Jón Bjarni, 22.11.2016 kl. 07:55
Sæll
Sniðugur þessi með athugasemdina. - Nú er Rauði krossinn með 70 manns, þar af 20 lögfræðinga í vinnu vegna flóttamanna og allra hinna sem vilja vera á Íslandi. Það er af sem áður var þegar hjálpin beindist að stríðshrjáðum. Í Danmörku er minni fjöldi nefndur neyðarástand.
Hvenær vakna stjórnvöldin hér?
Einar Sveinn Hálfdánarson, 22.11.2016 kl. 10:50
Ef þetta er sér íslenskt vandamál er það þá ekki okkar að leysa úr því?
Kemur þetta Evrópusambandinu eitthvað við?
Agla, 22.11.2016 kl. 12:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.