Fimmtudagur, 3. nóvember 2016
Frjálslyndir innherjar með stefnu Samfylkingar
Björt framtíð og Viðreisn eru tvær útgáfur af Samfylkingunni, sem þjóðin hafnaði í kosningunum 2013 (12,9%) og aftur um helgina (5,7%). Björn Bjarnason spyr hvort Björt Viðreisn ætli virkilega að taka upp föllnu samfylkingarstefnuna.
Samanlagt er Björt Viðreisn með 17,7% fylgi, rúmur hálfdrættingur á við Sjálfstæðisflokkinn.
Ekkert fyrirsjáanlegt stjórnarmynstur er til sem gerir Bjartri Viðreisn kleift að verða ráðandi afl í landsstjórninni. Valdaplott með Heiðu Kristínu Helgadóttur sem millilið er aðeins til að fresta myndun starfhæfrar ríkisstjórnar.
Betra að leggja í púkk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er andstyggilegt þegar flokkar fela aðal tilgang framboðs síns.Ég komst að því í dag að tvö af vinum mínum úti á landi voru að lýsa ánægju sinni með stefnu Viðreisnar að tengja krónuna við annan gjaldmiðil og þá félli verðtryggingin niður. Þau höfðu ekki heyrt þau nefna ESB eða Evru á nafn.
Helga Kristjánsdóttir, 4.11.2016 kl. 01:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.