Þriðjudagur, 4. október 2016
Óþarfi að gera þinghlé fyrir kosningar
Kosningabaráttan er háð í fjölmiðlum og innan veggja alþingis. Alger óþarfi er að gera hlé á störfum þingsins þótt kosningar standi fyrir dyrum.
Þinghlé fyrir kosningar er arfur frá þeim tíma þegar þingmenn fóru með skipum að hitta kjósendur og standa fyrir fundum heima í héraði.
Ekkert mælir geng því að fundir alþingis standi fram að vikunni fyrir kosningar. Þinghlé í viku er meira en nóg til að þingmenn viðri sig við kjósendur.
Funda um framhald þingstarfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Fyrir það fyrsta átti aldrei að láta það eftir þessum háværa "Austurvallarskríl" að efna til kosninga í haust. Að öðru leiti er ég alveg sammála.
Jóhann Elíasson, 4.10.2016 kl. 20:16
Þú ættir að segja þeim fjölmörgu stjórnarþingmönnum sem láta ekki sjá sig á þinginu þessa dagana frá þessu.. Salurinn er tómur
Jón Bjarni, 4.10.2016 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.