Þriðjudagur, 20. september 2016
Orð Birgittu eru lög Pírata
Þá er það staðfest. Stefna Pírata er það sem Birgittu Jónsdóttur dettur í hug hverju sinni.
Þingmaður Pírata, Ásta Guðrún Helgadóttir, telur að Birgitta hafi verið misskilin. Vegna þess hversu stór fígúra Birgitta væri í röðum Pírötum kunni fólk að hafa tekið því þannig að það sem hún segði væru lög.
Ef Birgittu líst illa á framboðslista Pírata er efnt til nýs prófkjörs, þar sem Birgitta og nánustu félagar hennar fá leyfi til að smala - en öðrum er það bannað. Orð Birgittu eru lög. Eins og sumir trúarleiðtogar talar Birgitta tungum. Því þarf sálfræðing að túlka orð hennar.
Deilt um völd og pólitíska fortíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Að það skuli þurfa vinnustaðarsálfræðing, svo almennir píratar skilji, misskilji ekki, eða villist af réttri leið, er umhugsunarefni. Þegar ein manneskja er orðin "svo stór fígúra", í flokki þar sem engin ein manneskja á að ráða öllu, að það þurfi sálfræðing til að koma boðskap hennar til skila, er fokið í flest skjól nostalgíunnar, sem flokksmenn dreymir um.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 20.9.2016 kl. 07:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.