Þriðjudagur, 14. júní 2016
Trump fær stuðning nóbelsverðlaunahafa
Samfélagsfriðurinn í Bandaríkjunum er í hættu vegna sífjölgandi fátæklingum sem vinna á lágmarkslaunum, skrifar Angus Deaton nóbelsverðlaunahafi í hagfræði.
Donald Trump forsetaframbjóðandi Repúblíkana talar máli láglaunafólks sem missa störf til þróunarríkja þegar stórfyrirtæki flytja framleiðsluna þangað í skjóli viðskiptasamninga.
Deaton segir nauðsyn að endurskoða alþjóðhagkerfi sem búi til fátæklinga á vesturlöndum til að hjálpa þróunarríkjum. Annars sé voðinn vís. Donald Trump er hávær boðberi válegra tíðinda.
Athugasemdir
Það er alveg -öruggt að ekkert versnar ef Trump verður fyrir valinu heldur verður breyting á heimsvísu og fólk mun hafa þor til að kjósa óhefðbundna menn. Ég veðja á Trump.
Valdimar Samúelsson, 14.6.2016 kl. 21:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.