Mánudagur, 25. apríl 2016
Ólafur Ragnar getur ekki tapað - nema í pólitík
Ólafur Ragnar Grímsson er með öll sín einkamál á þurru. Ferill Ólafs Ragnars spannar nær hálfa öld. Á þeim tíma er hann með hreinan skjöld hvað viðkemur aðskilnaði einkalífs og þátttöku í landsmálum.
Aldrei hefur verið hægt að hanka hann á því að blanda persónulegum fjármálum eða efnahagslegum ávinningi saman við opinber störf.
Ólafur Ragnar er þeirrar náttúru að hann verður ekki sóttur nema með pólitískum vopnum. Og þar er hann meistari, sem sést á því að var kjörinn forseti 1996 með stuðningi vinstri- og miðjumanna en árið 2012 með hægri- og miðjufylgi.
Til að fella sitjandi forseta þarf að sækja að honum frá öðrum hvorum væng stjórnmálanna og fá drjúgt af miðjufylginu með. Engin slík pólitísk breiðfylking er í sjónmáli.
Ólafur og Dorrit ekki kröfuhafar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nú hamast menn við að finna einhver tengsl hans við TORTOLA sem er besta vopnið.
Hvað ríkir ættingjar konu hans hafa gert gegnum tíðina er ekkert sem Ólafur ber ábyrgð á.
Erla Magna Alexandersdóttir, 25.4.2016 kl. 18:44
Rétt er það, Erla. Það ber enginn ábyrgð á því hvað foreldrar manns gera, hvað þá tengdaforeldrar.
Annars er það mjög gott, að Dorritt eigi ekki bankareikning hér á landi, því að þá ætti hún pening á aflandsreikningi og væri í mjög vondum málum.
Aztec, 25.4.2016 kl. 19:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.