Mánudagur, 11. apríl 2016
Erlendir bakhjarlar Samfylkingar
Erlend huldufélög leigja Samfylkingunni húsnæði undir höfuðstöðvar flokksins. Formaðurinn kemur af fjöllum, segist ekkert vita hverjir eiga huldufélögin í útlöndum sem hýsa Samfylkinguna.
Það samrýmist illa að gera kröfu um siðbót í stjórnmálum og samtímis fela bakhjarla sína undir erlendri kennitölu.
Samfylkingin hlýtur að gera hreint fyrir sínum yrum tilkynna alþjóð hverjir eigendurnir eru og útskýra hvers vegna eignarhaldi á höfuðstöðvum flokksins er haldið leyndu.
Þekkir ekki eignarhaldið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvad aetli leigan sé há? Jóhannes Kr. í málid!
Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 11.4.2016 kl. 07:30
Jóhannes Kr., fer ekki að grafa upp skít um eigin flokk........
Jóhann Elíasson, 11.4.2016 kl. 10:34
Og varla tekur RÚV að sér að fjalla um meint tengsl SF við félög í vafasömum viðskiptum
Tómas Ibsen Halldórsson, 11.4.2016 kl. 11:40
162/2006: Lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra - 1. málsl. 5. mgr. 6. gr.:
"Óheimilt er að veita viðtöku framlögum frá erlendum ríkisborgurum, fyrirtækjum eða öðrum aðilum sem skráðir eru í öðrum löndum."
162/2006: Lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra - 2. málsl. 4. tl. 1. mgr. 2. gr.:
"Til framlaga í þessum skilningi teljast allir afslættir af markaðsverði, ívilnanir og eftirgjöf, þar með taldir afslættir af markaðsverði auglýsinga, eftirgjöf eftirstöðva skulda, óvenjuleg lánakjör o.s.frv. ..."
Guðmundur Ásgeirsson, 11.4.2016 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.