Miðvikudagur, 9. mars 2016
Drottningin og Jón Baldvin sammála um ónýtt ESB
Elísabet Bretadrottning er sammála Jóni Baldvini Hannibalssyni um að Evrópusambandið sé ekki æskilegt heimili fyrir fullvalda eyþjóðir Bretlands og Íslands.
Jón Baldvin segir ESB brennandi hús og drottningin telur æskilegt að Bretland yfirgefi þau híbýli.
ESB-flokkur Íslands, Samfylkingin, stendur frammi fyrir tveim valkostum. Að hafna ESB-aðild og éta ofan í sig Evrópustefnuna eða bjóða ekki fram í alþingiskosningunum eftir 15 mánuði.
Drottningin sögð hlutlaus gagnvart ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hnífurinn hefur sjaldan komist á milli Elísabetar og Jóns Baldvins.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 9.3.2016 kl. 11:56
Er þá fyrirsögnin röng sem segir að drottningin sé hlutlaus í málinu?
Ómar Ragnarsson, 9.3.2016 kl. 13:43
Ekki í fyrsta skipti sem fyrirsögn stangast á við frétt.
"Pólitískt" er sagt að drottningin sé hlutlaus en "persónulega" ekki.
Kolbrún Hilmars, 9.3.2016 kl. 15:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.