Laugardagur, 23. janúar 2016
Sjálfstæðisflokkurinn er á Kvíabryggju
Þrír fangar á Kvíabryggju, sem sjónvarp Jóns Ásgeirs birti viðtal við, eru pólitískt andlit Sjálfstæðisflokksins. Fangarnir komust til álna þegar einkavæðing Sjálfstæðisflokksins stóð yfir og frjálshyggja æðstavald í pólitík.
Þjóðinni gast ekki að föngunum á Kvíabryggju. Þeir eru hrokafullir og þess albúnir að endurtaka leikinn frá útrás til hruns. Þannig er Sjálfstæðisflokkurinn: ætlar að einkavæða bankakerfið á einu bretti, - vegna þess að auðmönnum er svo vel treystandi fyrir fjármálastofnunum þjóðarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn lærði ekkert af hruninu. Flokkurinn heldur í sömu kilisjupólitíkina og leiddi okkur í hrunið. Nýmælin í pólitík Sjálfstæðisflokksins eru helst þau að éta upp misheppnaða fjölmenningarstefnu góða fólksins.
Auðmanna- og fjölmenningarstefna Sjálfstæðisflokksins skilar 19,5 prósent fylgi. Flokkurinn er huggulegur smáflokkur, eins og Halldór Jónsson orðar það.
Sjálfstæðisflokkurinn gat orðið þjóðarflokkur ef hann hefði lesið rétt í spilin kjörtímabilið 2009 til 2013. Þá réð hér vinstristjórn sem gerði atlögu að stjórnskipun lýðveldisins. Stjórnarskránni átti að kollvarpa og flytja fullveldið til Brussel.
Atlögu vinsstriflokkanna á lýðveldið var hrundið. Í nafni hvaða hugmynda? Kom einkavæðing eða frjálshyggja þar við sögu? Nei, lítið sem ekkert.
Fullveldi, gróin borgaraleg gildi um varkárni og íhaldssemi í félagslegum málefnum og ríksfjármálum voru ráðandi í andófinu gegn vinstristjórninni.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst í ríkisstjórn vorið 2013, mest fyrir tilstilli kosningasigurs Framsóknarflokksins, þá hélt forysta flokksins að þjóðin hefði veitt umboð fyrir nýrri einkavæðingu á grunni frjálshyggju. Það var mikill misskilingur.
Davíð Oddsson sá fyrir sér hörmungarferlið sem frjálshyggjan var komin í haustið 2003 þegar hann tók út einkasparnaðinn úr Kaupþingi-Búnaðarbanka. Þá voru fimm ár í hrun og engu var hægt að breyta vegna þess að tiltekin pólitísk hugmyndafræði hafði sigrað. Ári eftir reyndi ríkisstjórn Davíðs að setja lög á fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs en tapaði þeim slag. Einkavæðingar-auðræðið var allsráðandi í samfélaginu.
Með hruni varð einavæðingar-auðræðið að gjalti. Forysta Sjálfstæðisflokksins átti vitanlega að urða líkið sjö fet undir yfirborði jarðar. Orðræða flokksins á að snúast um sígilda borgaralega stefnu s.s stjórnfestu, fjölskylduvelferð og lög og rétt í samfélaginu.
Sjálfstæðisflokkurinn er á Kvíabryggju og losnar ekki þaðan fyrir næsta þingkosningar. Pólitísk orðræða kemur ekki eins og kanína upp úr hatti töframanns kortéri fyrir kosningar.
Fylgi Pírata eykst enn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Stjórnarskránni átti að kollvarpa." "Hverfa frá hinu norræna módeli stjórnarskráa."
Svona upphrópanir eiga sér enga stoð en hver étur upp eftir öðrum án nokkurs rökstuðnings.
Umbótaákvæðin í frumvarpi stjórnlagaráðs voru fengin úr smiðju þess besta sem gert hefur verið í nýjum stjórnarskrám á Norðurlöndum til að tryggja lýðræðiðð og lýðveldið og andæfa misvægi á myndast hefur milli hinna þriggja þátta valdsins.
Ómar Ragnarsson, 23.1.2016 kl. 12:42
Sjálfstæðisflokkurinn gat aldrei orðið þjóðarflokkur eftir 2008. Alveg sama hvernig hann hefði lesið í spilin. Hvernig í ósköpunum??? Með því að reka alla bakhjarlana úr flokknum? Ertu búinn að gleyma landsfundinum 2009?
Í dag þá virðist Framsókn vera svar við þínu ákalli um afturhvarf til borgaralegra gilda. Þeir boða svipaða þjóðmenningarstefnu og þú
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 23.1.2016 kl. 13:54
Gat verið að hið sjálfhverfa stjórnlagaráð svaraði á sinn hátt.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.1.2016 kl. 13:54
Þegar Páll er farinn að gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn, þá er fokið í flest skjól.
Jón Ragnarsson, 23.1.2016 kl. 15:02
Smá Fróðleiksmoli: Hér er brot úr viðtali við Hannes Hólmstein úr Reykjavík Grapevine:
You have also worked with the Independence Party for a long time. You’ve often been referred to as the party ideologue.
You could say that I had a lot of opportunities to implement my ideas and ideologies in the years 1991-2004, when Davíð Oddson was Prime Minister, because we are good friends and collaborators. I will gladly acknowledge that I supported a lot of the changes that were made in our economic system during that time: We increased freedom of trade and of the individual, lowered taxes, opened up the economy, privatised and deregulated. I think it was a great success. When we left the scene in 2004, Iceland was one of the richest and most free nations in the world.
Wilhelm Emilsson, 23.1.2016 kl. 19:29
Sannarlega var ætlun Jóhönnu og co. að kollvarpa stjórnarskránni, eyðileggja hana svo fullveldinu gæti verið komið til Brussel. Skiptir engu máli þó í nýju skránni mundu líka hafa verið góðir punktar. Svo hefur Páll hefur oft gagnrýnt Sjálfstæðisflokkinn, Jón.
Elle_, 24.1.2016 kl. 00:58
Nú er fokið í flest skjól,fátt er því til ráða,vonin sem í brjósti ól,arkar nú til náða.
Helga Kristjánsdóttir, 24.1.2016 kl. 02:09
Elle, er þér rótt ? "Sannarlega var ætlun Jóhönnu og co. að kollvarpa stjórnarskránni, eyðileggja hana svo fullveldinu gæti verið komið til Brussel"
Er þetta e-ð grín ?
Þú veist greinilega ekkert um stjórnmál.
Sigfús Ómar Höskuldsson, 24.1.2016 kl. 16:09
Góði Tómas, mér er alveg rótt og meinti hvert einasta orð. Og skildi í ofanálag alveg hvað ég var að segja.
Elle_, 24.1.2016 kl. 16:51
Sigfús. Var að hugsa um nafnið Tómas.
Elle_, 24.1.2016 kl. 16:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.