Mánudagur, 11. janúar 2016
Stađgenglastríđ Írana og Sáda - vandi múslíma
Í Jemen heyja stórveldi miđausturlanda, íran og Sádi-Arabía, stađgenglastríđ. Hvort um sig stórveldiđ styđur andstćđa keppinauta um völdin í smáríkinu.
Íran er forysturíki sjítamúslíma en Sádar súnnímúslíma. Utanríkisráđherra írans veitir innsýn í samkeppni stórvelda múslíma međ grein í New York Times. Ţar fordćmir hann miđaldaháttu Sáda sem taka menn af lífi á opinberum svćđum međ sveđju.
Íran hefur ekki ţótt barnanna best í umgengni viđ mannréttindi. Landi er nýkomiđ inn úr kuldanum eftir samninga viđ alţjóđasamfélagiđ um ađ smíđa ekki gereyđingarvopn úr kjarnorku.
Sádí-Arabía er helsti skjölstćđingur vesturveldanna međal múslímaríkja í miđausturlöndum. Íranir njóta á móti stuđnings Rússa.
Uppgjör múslímsku stórveldanna mun taka áratugi fremur en ár.
Loftárás á sjúkrahús í Jemen | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Athugasemdir
Ég er hrćdd um ađ ţú hafir rétt fyrir ţér Páll. Ţetta mun taka mörg ár.
Ragnhildur Kolka, 11.1.2016 kl. 13:33
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.