Laugardagur, 9. janúar 2016
Listin í valdabaráttunni
Eftir hrun brast á valdabarátta á Íslandi. Ástæðan er ung stétt manna, bankamenn og útrásarauðmenn, þurrkaðist út nánast á einni nóttu og skildi eftir sig gapandi valdatóm.
Inn í þetta valdatóm sóttu sóttu hópar sem vildu breyta Íslandi eftir sínu höfði. Banka- og útrásarauðmenn breyttu Íslandi í allsherjar vogunarsjóð skópu þar með fordæmi sem aðrir vildu fylgja.
Sigur vinstriflokkanna, Samfylkingar og Vinstri grænna, í þingskosningunum 2009 sýndi hvaða öfl höfðu forræði í landinu; háskólafólk, ríkisstarfsmenn og verklýður menningarinnar voru þar áberandi.
Orðfærið sem nýju valdahóparnir höfðu um bændur, sjómenn og aðra sem ekki voru fúsir að smíða Vinstra-Ísland, samþykkja Icesave og flytja fullveldið til Brussel, var oft ekki til fyrirmyndar. Ekki frekar en hróp um listafólk á opinberum starfslaunum er til eftirbreytni.
Tilraun vinstriflokkanna að stokka upp Ísland mistókst og rann endanlega út í sandinn með hrikalegu tapi Samfylkingar og Vinstri grænna vorið 2013.
Valdabaráttan heldur engu að síður áfram og Vilborg Davíðsdóttir fer nærri birtingarmyndar hennar þegar hún segir ólíka hópa
ausa svívirðingum yfir hverja starfsstétt fyrir sig og nefna hana illum nöfnum eins og afætur, blóðsugur, jötulið og skítapakk?
Við mættum alveg temja okkur háttvísari orðfæri í umræðunni. Valdabaráttan endar með málamiðlun. Alveg eins og við þurfum fisk úr sjó og ket að eta værum við ekki Íslendingar án höfunda sem setja lífsstreðið í samhengi.
Vilborg Davíðsdóttir svarar fyrir sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er ólíklegt að metsölu-höfundar sem setja lífsstreðið í samhengi, hætti að mala gull með verkum sínum þó þeir þyrftu að borga saltið í grautinn sinn sjálfir, en létu ekki skattgreiðendur hjálpa sér við það.
Mér finnst hins vegar sjáfsagt að lyfta aðeins undir rassinn á ungum lítt þekktum og efnilegum listamönnum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 10.1.2016 kl. 05:03
"Íslendingar eru hænsn" Elskan hann mágur minn gerði ekki upp á milli okkar.
Helga Kristjánsdóttir, 10.1.2016 kl. 11:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.