Stjórnarandstaðan vill völd án umboðs eða ábyrgðar

Meirihluti alþingis á hverjum tíma ber ábyrgð á landsstjórninni. Stjórnarmeirihlutinn stendur þjóðinni reikningsskil í kosningum enda fékk hann meirihlutaumboð frá kjósendum.

Stjórnarandstaðan er með það hlutverk að veita meirihlutanum aðhald og setja fram pólitíska valkosti við ríkjandi stjórnarstefnu.

Sitjandi minnihluti vinstriflokka og Pírata vill grípa fram yfir hendur stjórnarmeirihlutans og stjórna landinu í krafti hótana um málþóf. Slík stjórn er án umboðs og algerlega ábyrgðalaus og gerræðisleg eftir því.

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs verður að standa fast í ístaðinu og láta ekki gerræði minnihlutans ráða ferðinni.


mbl.is „Menn eru í algjörri sjálfheldu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Hefur þú ágæti Páll eitthvað á móti því eins og með mig sem er ellilífeyrisþegi og hefi,  þegar húsaleiga og aðrar greiðslur hafa verið borgaðar um mánaðarmót,  þá á ég eftir heilar sextíu þúsund krónur í peningum fyrir mat lyfjum jólagjöfum fyrir 8 barnabörn mín og svo annað,  sem til fellur ?    Treystir þú þér Páll Vilhjálmsson að vera í mínum sporum,  nei ég held ekki.

Þorkell Sigurjónsson, 16.12.2015 kl. 12:19

2 Smámynd: Björn Jónsson

Þorkell. Hafðir þú ágæti Þorkell, það svona helv... gott þegar þínir menn stjórnuðu á síðasta kjörtímabili ?????

Björn Jónsson, 16.12.2015 kl. 12:54

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  ýmislegt átti maður eftir að upplifa,að gamlingjar væru að barma sér. Við sem erum á þeim árum í dag höfum séð fullhuga reisa landið upp frá örbirgð til velmegunar. Hverjir ætli hafi svo kollsteypt því,nema uppalningarnir,sem allt fengu upp í hendurnar.-Fólkið kaus þá ekki til forystu,en þá beita þeir hverskonar meintum ómögum fyrir sig,öldruðum og útlendingum. Veljum alvöru gæði.

Helga Kristjánsdóttir, 16.12.2015 kl. 14:14

4 Smámynd: Elle_

Meðan núverandi stjórnarflokkar (fyrrverandi stjórnarandstaða) voru sakaðir um málþóf, studdi ég það (ef það væri málþóf) til að koma í veg fyrir kúgunina ICESAVE. 

Núna styð ég líka málþóf ef viti borið fólk í alvöru notar það af illri nauðsyn.  (Ögmundur einn er það, mér vitandi, vinstra megin í stjórnmálum núna).  Það ætti að taka lækna alvarlega og bæta í peningum fyrir spítalann.

Elle_, 16.12.2015 kl. 19:50

5 Smámynd: Elle_

Réttara væri að fjöldi manns studdi málþóf gegn ICESAVE og líklega líka núna fyrir eldra fólk og spítalann, miðað við raddir fólks.

Elle_, 16.12.2015 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband