Árni Páll tekur evruna á múslímaöfgar

Fráleitt er að tengja hryðjuverk við múslímatrú, segir Árni Páll Árnason formaður Samfylkingar. Árni Páll tekur evru-rökin, um að evran sé góð þótt hún drepi sterk hagkerfi eins og það finnska og valdi verðhjöðnun, og yfirfærir á múslímatrú.

Hún Jaleh Tavakoli er ekki sammála formanni Samfylkingar. Tavakoli biður okkur að berjast gegn islamistum, sem allir eru múslímar, - þótt ekki allir múslímar séu íslamistar.

Sæmilega læsir menn, Jóns Kristjánsson til dæmis, vita að múslímatrú er í vandræðum með að aðlagast nútímanum.

Árni Páll vill veita múslímum aflausn; þeir þurfi ekki að horfast í augu við miðaldastig trúarinnar. Múslímar, sem sýna sig hæfa til aðlögunar að vestrænni menningu, eru ósammála. Mona Siddiqui prófessor við Edborgarháskóla segir múslíma verða horfast í augu við ábyrgð trúarinnar, og iðkun hennar, á hryðjuverkum.

Herskáir múslímar þrífast á rökum Árna Páls og fitna eins og púkinn á fjósabitanum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband