Mánudagur, 7. september 2015
Bretar bjóða heim múslímum, drepa sína eigin í útlöndum
Bretar bjóða múslíma velkoma til landsins í sömu andrá og breski herinn drepur breska múslíma í Sýrlandi. Þrír breskir liðsmenn Ríki íslam féllu í Sýrlandi, tveir fyrir breska hernum en sá þriðji var drepinn af bandaríska hernum.
Liðsmenn Ríki íslam eru herskáir múslímar. Þó nokkrir koma frá Vestur-Evrópu. Einn þeirra þriggja sem féllu ól með sér draum um að verða fyrsti breski forsætisráðherrann af asískum uppruna.
Bretland tekur við múslímum, fæðir og klæðir og gefur þeim færi á siðmenntuðu lífi. Sumir endurgjalda greiðann með því að taka upp vopn gegn vestrænum gildum undir merkjum Ríkis íslam. Kannski eru það nágrannar eða skólabræður í breska hernum sem fá það verkefni að taka múslímska samlanda af lífi án dóms og laga.
Siðmenning okkar er komin að þolmörkum.
Bretar taka við 20.000 sýrlenskum flóttamönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Snjall pistill bloggarans Páls.
Jón Valur Jensson, 8.9.2015 kl. 00:05
Hver er svo "bróðir minn",sem Kristur segir okkur að gæta?
Helga Kristjánsdóttir, 8.9.2015 kl. 01:09
Lítum á það, hvort bræðralagshugsjón múslima á Frakklandi sé djúptæk:
Hér er frábært myndband, þessi franska kona er einstakur talsmaður frelsis og andstöðu við trúarofstæki margra múslima –– nei, þið þurfið ekki að trúa mér, það er engin þörf hér fyrir fleiri orð –– hún talar bezt fyrir máli sínu sjálf, og í þessu stutta ávarpi hennar eru afhjúpandi staðreyndir sem koma munu ýmsum á Íslandi á óvart!
https://www.youtube.com/watch?v=mjpo79JPpO0&feature=share
Jón Valur Jensson, 8.9.2015 kl. 15:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.