Miðvikudagur, 19. ágúst 2015
Evru-ríkin dreymir um Ísland
Evru-ríkin getur aðeins dreymt um íslenskan efnahagsbúskap með hagvexti og lágu atvinnuleysi, segir viðskiptaféttaveitan Bloomberg.
Evru-ríkin eru í varanlegri kreppu og gjaldmiðlasamstarfið mun springa vegna pólitískrar reiði sem kreppan veldur, segir Jeremy Warner á Telegraph.
Eina leiðin til að bjarga evru-ríkjunum er að gera þau að sambandsríki eins og Þýskaland, segir Wolfgang Münchau í Spiegel.
ESB-sinnar á Íslandi, sem létu sig dreyma um evru-aðild, búa við stöðuga martröð þegar Ísland er orðið fyrirheitna land evru-ríkjanna.
Ísland á leið í hóp þeirra ríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Haha - góður að vanda kæri Páll !
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 19.8.2015 kl. 11:11
Ætli ESB hafi hug á að sækja um aðild að Íslandi og taka upp ISK í stað Evru?
Tómas Ibsen Halldórsson, 19.8.2015 kl. 11:34
Niður með vextina!
Guðmundur Ásgeirsson, 19.8.2015 kl. 12:39
Pólitísk sjálfsblekking ívafinn örvæntingu þessi pistill.
Alt sem andstæðingar Evrópusamstarfsins hafa sagt undanfarin mörg ár hefur reynst rangt. Allt saman.
Hægt og rólega fjarar undan Andsinnum og aðild Íslands að Sambandinu verður barasta þróun.
Við erum nú þegar 80-90% aðilar að Evrópusambandinu og svo sem lítið verk að klára það er útaf stendur. Gæti tekið part úr degi.
Íslendingar eiga hugsanlega eftir að vakna upp við það einn daginn að landið er alveg komið í Sambandið. Fullur og formlegur aðili. Og það gæti hafa gerst með hægfara þróun. Sennilegast verður það þannig.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 19.8.2015 kl. 17:52
Hverjir eru þessir meintu "andstæðingar Evrópusambandsins"???
Guðmundur Ásgeirsson, 19.8.2015 kl. 18:28
ÓBK
Þú hefur fullkomlega rangt fyrir þér í þessari athugasemd sem jafnan.
Þú ert ekkert að k oma á óvart með það auðvitað
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 19.8.2015 kl. 22:03
ÓBK, Hið rétta er að EES samningurinn með viðaukum (articles, annexes, protocols og final act) er um 1.300 síður á meðan ESB regluverkið í heild er um 100.000 síður. Ísland er búið að taka upp 80% af þessum 1.300 síðum eða sem nemur um 1.040 síðum sem er c.a 1% af heildar regluverki ESB.
http://www.efta.int/legal-texts/eea
Eggert Sigurbergsson, 20.8.2015 kl. 08:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.