Sunnudagur, 16. ágúst 2015
Gunnar Bragi hótar að ganga í Samfylkinguna
Samfylkingin er miðstöð ESB-sinna á Íslandi. Aukabúgrein hjá Samfylkingu er að níða skóinn af landsbyggðinni og heimta að fiskveiðikvótinn verði tekin af fyrirtækjum þar og seldur á uppboði til kínverskra og evrópskra útgerða.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, sem skipar ESB-sinna í embætti þegar því verður við komið og vitnar í blaðaskrif þeirra, segist íhuga að ganga til liðs við Samfylkinguna og mæla með uppboði á fiskveiðikvóta. Áður hefur Gunnar Bragi tekið undir það sjónarmið ESB-sinna að Ísland hætti hvalveiðum.
Sigmundur Davíð forsætisráðherra á vitanlega að taka Gunnar Braga á orðinu og leyfa honum að ganga í Samfylkinguna og afþakka jafnframt fleiri pólitísk járnbrautaslys í utanríkisráðuneytinu.
Útgerðin sýni samfélagslega ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég veit þú ert búinn að vera einn í heiminum Palli, svo kom ESB, samt ertu áfram að berjast. Síðan þvælist NATO fyrir, helvítis elsku NATO, eftir því hvernig vindar blása hverju sinni í þínum kolli. Samt held ég, í ofstæki þínu, að þú ruglir ansi oft saman NATO og ESB.
Jónas Ómar Snorrason, 16.8.2015 kl. 16:11
Okkur kæmi betur að hann hlypi!
Helga Kristjánsdóttir, 16.8.2015 kl. 17:21
Já ég held að Gunnar Bragi verði að endurskoða orð sín, og ef ekki þá verður Sigmundur Davíð að blanda sér í málið og koma manninum í burtu...
Þjóðin sagði ákveðið hug sinn í þessu ESB máli í síðustu Alþingiskosningum þegar tæplega 80% kusu flokka sem vilja ekki í ESB, flokka sem telja að hag okkar sé betur borgið fyrir utan ESB...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 16.8.2015 kl. 17:30
Þeir LANDRÁÐAFYLKINGARMENN mega sko hirða þennan sótraft og yrði það mikil hreinsun, svo kæmi kannski almennilegur maður í Utanríkisráðuneytið í staðinn.
Jóhann Elíasson, 16.8.2015 kl. 17:31
"Við eigum allt okkar undir því að borin sé virðing fyrir alþjóðalögum og að landhelgi ríkja sé virt. Í ítrustu neyð þurfum við að reiða okkur á það að aðrar þjóðir verði reiðubúnar að leggja líf eigin borgara í hættu til þess að við fáum áfram að eiga okkar eigin fisk í friði, við getum ekki ætlast til að þær geri það umhugsunarlaust ef við sjálf erum ekki til í að færa neinar fórnir." - Gunnar Bragi
Getur einhver hér útskýrt fyrir mér hvað er rangt við þetta?
Jón Bjarni, 16.8.2015 kl. 17:44
Ég kemst við!
Helga Kristjánsdóttir, 16.8.2015 kl. 18:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.