Laugardagur, 15. ágúst 2015
Siðleysingjar og skattasniðganga
Á forsíðu DV segir frá forstjórnum og auðfólki sem stundar skipulagða skattasniðgöngu með því að skrá heimilsfestu sína erlendis. Þetta fólk stundar flest hvað rekstur hér á landi og nýtir opinbera þjónustu fyrir sig og sína - en greiðir ekki sinn skerf til samfélagsins.
Þorri þeirra sem rata á forsíðu DV eru einstaklingar sem komist hafa í kast við lögin, iðulega vegna auðgunarbrota. Glæpir og siðleysi haldast iðulega í hendur.
Er ekki rétt að birta þennan lista reglulega og uppfæra til að við getum sniðgengið rekstur þessa fólks?
Athugasemdir
Heyr heyr kæri Páll.
Þú grípur jafnan á kýlinu - góð tillaga hjá þér.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 15.8.2015 kl. 14:00
Páll.. Þeir sem ekki greiða skatta hér njóta ekki þeirra fríðinda sem við sem það gerum njóta - þeir borga t.d. fullt verð fyrir heilbrigðisþjónustu. Fjöldi fólks á þessum lista er einfaldlega búsett erlendis, borgar þar sína skatta og nýtur þeirrar þjónustu þar sem því fylgir. Þeir sem dvelja í öðru landi en Íslandi meira en 183 daga á ári hafa ekki skattalega heimilisfesti hér nema í undantekningartilfellum
Jón Bjarni, 15.8.2015 kl. 21:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.