Miðvikudagur, 8. júlí 2015
Sálfræðilegt áfall Samfylkingar, minni en Vinstri grænir
Fylgi Vinstri-grænna mælist nú 12,0% en Samfylkingin fær 9,3%. Þar með eru Vinstri grænir orðnir leiðandi á vinstri kanti stjórnmálanna en Samfylkingin er í sárum.
Fyrrum ráðherra Samfylkingar spyr um síðustu daga Samfylkingar og biður menn að snúa bökum saman, líkt og gert er þegar liðsflokkur er umkringdur.
Samt er engin hætta á að samfylkingarfólk berjist til síðasta blóðdropa. Tækifærismennskan leyfir það ekki. Samfylkingarmenn eru á leiðinni yfir til Pírata, þar er fylgið.
Píratar enn langstærstir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það gekk ekki eftir hjá Össuri að stofna Bjarta Framtíð, til að taka við óánægjufylki frá LANDRÁÐAFYLKINGUNNI, nema bara til að byrja með. Nú er Björt Framtíð að hverfa (farið hefur fé betra). En eru virkilega einhverjir sem geta séð Birgittu Jónsdóttur fyrir sér sem forsætisráðherra???????
Jóhann Elíasson, 9.7.2015 kl. 07:11
Ekki ég bara alls ekki.
Helga Kristjánsdóttir, 9.7.2015 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.