Sunnudagur, 21. júní 2015
Grikkland er í fátæktargildru evrunnar
Með evru eru Grikkir fastir í ósjálfbærum skuldum og gengisskráningu sem viðheldur atvinnuleysi upp á 25 prósent, þar sem annar hver undir þrítugu er án vinnu. Gengi evrunnar er ákveðið í Brussel, Frankfurt, París og Berlín og Grikkjum finnst sjálfsagt að aðrar þjóðir ali önn fyrir þeim.
Lífeyrissjóðakerfið í Grikklandi er það dýrasta í Evrópu, og sennilega öllum heiminum, tekur til sín heil 16,2 prósent af þjóðarframleiðslu. Grikkir geta byrjað lífeyristöku 58 ára gamlir sem er með því yngsta í ESB-ríkjum.
Ríku ESB-ríkin í norðri eru ekki tilbúin að niðurgreiða lífeyrisgreiðslur til Grikkja og krefjast þess að þær verði lækkaðar.
Grikkir líta svo á að krafa ESB-ríkja sé íhlutun í grísk innanríkismál. Í Evrópusambandinu, sérstaklega í evru-samstarfinu, eru einstök þjóðríki óðum að fá stöðu héraðsstjórna í sambandsríki Evrópu.
Val Grikkja stendur á milli þess að vera fátækir, atvinnulausir og ósjálfbjarga í evru-samstarfi eða rífa af sér hlekkina og verða þjóð meðal þjóða á ný.
Bankarnir eru akkilesarhæll Grikkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þessu landi er búið að vera meira og minna stjórnað af múgæsingamönnum og glæpaklíkum síðan eftir heimstyrrjöld. Það er ekkert að fara að breytast.
Ásgrímur Hartmannsson, 21.6.2015 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.