Föstudagur, 19. júní 2015
Meira Danmörk, minna ESB
Danski þjóðarflokkurinn er sigurvegari kosninganna í Danmörku og er stærsti hægriflokkurinn þar í landi. Líkt og breski Íhaldsflokkurinn, sem vann kosningasigur í maí, er Danski þjóðarflokkurinn gagnrýninn á Evrópusambandið.
Danski þjóðarflokkurinn vill, líkt og Íhaldsflokkurinn í Bretlandi, takmarka valdheimildir Evrópusambandsins og minnka umsvif Brusselvaldsins.
Sigrar Danska þjóðarflokksins og Íhaldsflokksins í Bretlandi staðfesta vaxandi fylgi við þá skoðun að Evrópusambandið er ekki lausnin heldur sjálfur vandinn.
Ríkisstjórn vinni þvert á flokkslínur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það lofar ekki góðu, þegar Lars Løkke talar um þverpólítíska ríkisstjórn, þ.e. ríkisstjórn sem samanstendur af Venstre, De Konservative og Socialdemokraterne. Einungis til að friðþægja stjórninni í Bruxelles, sem myndi hunza lögmæti ríkisstjórnar með DF innanborðs. Enda er lýðræði ósamræmanlegt hugsunarhætti bureaukratanna þar.
Pétur D.
Aztec, 19.6.2015 kl. 09:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.