Laugardagur, 13. júní 2015
Kjaraviðræður voru strandaðar - lögin eru nauðsyn
Lög á verkföll BHM og hjúkrunarfræðinga voru nauðsyn þegar sem kjaraviðræður skiluðu engri niðurstöðu. Eftir að opinberir starfsmenn höfnuðu leiðsögn samninga ASÍ-SA strandaði samningaferlið.
Forysta opinberra starfsmanna lagið upp með væntingar sem ekki var von til að næðu fram að ganga. Forystan var ekki með varaáætlun sem hægt var að grípa til þegar almennu samningarnir lögðu línurnar.
Nú gefst tími til að meta aðstæður upp á nýtt og finna leið að samkomulagi.
Segir lagasetningu niðurlægingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þeir sem kynna sér ekki söguna Páll ættu kannski ekki að kenna hana við menntastofnun.
Þetta er að ég held þriðja skiptið í röð sem lög eru sett á verkfall þessara stétta og ef þetta fer eins og tvö síðustu skipti þá mun eftirfarandi gerast.
Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 14.6.2015 kl. 01:23
Það reyndi lítið á samningsvilja hjúkrunarfræðinga....enda ekkert í oði af hálfu ríkissins. Niðurstaðan af þessu ofbeldi verður aukin mannekla....og nógu slæmt var ástandið fyrir.
Hólmdís Hjartardóttir, 14.6.2015 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.