Þriðjudagur, 28. apríl 2015
Holu-borgin án flugvallar
Vinstrimenn kunna ekki framkvæmdir, samanber viðurnefnið holu-borgin, og þeir kunna heldur ekki rekstur, eins og nýjar tölur úr ráðhúsinu við Tjörnina bera með sér.
Framganga vinstrimeirihlutans í málefnum Reykjavíkurflugvallar sýnir valdhroka þar sem meirihlutinn freistar þess að grafa undan flugvellinum í bókstaflegum skilningi. Með því að hleypa verktökum inn á helgunarsvæði flugvallarins er reynt að búa til staðreyndir á jörðu niðri sem gera flugvöllinn ónothæfan.
Alþingi hlýtur að grípa í taumana og færa skipulagsvaldið á mikilvægum samgöngumannvirkjum og umhverfi þeirra til stjórnarráðsins, til að óvitarnir í ráðhúsi Reykjavíkur valdi ekki meiri skaða á almannahag.
Ég lít þetta mjög alvarlegum augum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er svosem í góðu ennþá. Látum þá byggja nokkra tugi húsa áður en við komum með jarðýtuna. Við eru búnir fylla tankinn og gera klárt, já já.
Eyjólfur Jónsson, 28.4.2015 kl. 20:20
Of langt í kosningar.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.4.2015 kl. 21:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.