Mánudagur, 2. mars 2015
7% lýðræði vinstrimanna með spillingarviðbiti
Göturnar í Reykjavík eru ónýtar vegna hirðuleysis og fatlaðir fá ömurlega þjónustu; en borgarstjórnarmeirihluti vinstrimanna splæsir í lýðræðiskosningar um gæluverkefni eins og leikvelli og gangstíga.
Til að kóróna lýðræðisfáránleikann, sem aðeins 7% kjósenda sinnir, þá sjá embættismenn um að ota sínum tillögutota fram til atkvæða.
Spillingarviðbitið bætir ekki yfirbragð lýðræðisfláttskapar vinstrimanna.
Spilling í Betri hverfum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bíddu bara Páll, Dagur er í þann mund að draga upp fiðluna.
Ragnhildur Kolka, 2.3.2015 kl. 20:42
Hinir sönnu KR-ingar - "auðvelda öllum sönnum KR-ingum að ganga eða hjóla á völlinn" Tek þetta úr fréttinni sem vísað er til. Ágætt að sjá hvaða álit borgarstjórnar meirihlutin hefur á þeim KR-ingum sem þurfa að komast leiðar sinnar á bíl.
Ragnhildur Kolka, 2.3.2015 kl. 20:49
Að sjálfsögðu ákveður borgarstjórnarmeirihlutinn hverjir eru "sannir" aðilar að íþróttafélögum
Þorgeir Ragnarsson, 3.3.2015 kl. 12:38
Sérkennilegt hugarfar að telja leikvelli fyrir börn og gang-hjólastígar séu gæluverkefni.
Þetta er 50 ára gamalt hugarfar og skoðanir...uss.
Jón Ingi Cæsarsson, 3.3.2015 kl. 18:03
Gat ekki ákveðið mig hvort ég ætti að kjósa um að fá viðhald á einum leikvelli fyrir 3 milljónir eða tvær ruslafötur fyrir 500 þúsund. Gleymdi mér í pælingunni hverslag forláta rusladallur kostar kvart milljón með uppsetningu og hvar þessar tvær fötur væru keyptir að ég kaus ekkert. Leitaði að möguleikanum að fá til baka niðurskurð á mat til skólanna um tugir milljóna- fann ekkert um það.
Sólbjörg, 4.3.2015 kl. 13:44
Er ekki ennþá sérkennilegra Jón og Páll að láta borgarbúa kjósa um viðhald á leikvöllum, gangstígum og kaup á ruslafötum?
Að sögn er "Lýðræðistilboð" borgarinnar til kjósenda er eitt helsta stolt borgarstjórnarinnar.
Sólbjörg, 4.3.2015 kl. 13:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.