Mánudagur, 10. nóvember 2014
Ungt fólk og efnalítið hagnast mest
Stóra leiðréttingin á húsnæðislánum kemur best út fyrir fólk undir fertugu og þá sem eru undir meðaltekjum.
Þrotabú föllnu bankanna eru skattlögð til að fjármagna leiðréttinguna. Um 69 þúsund heimili eiga rétt á niðurfærslum lána vegna húsnæðiskaupa. Meðalfjárhæð niðurfærslu á hvert heimili er 1,1 milljónir króna. Tæpur helmingur fær niðurgreiðslu á bilinu 0,5 til 1,5 milljónir króna.
Öll verðbólga umfram 4% á árunum 2008-2009 er leiðrétt til fulls. Eiginfjárstaða 56.000 heimila styrkist með beinum hætti og um 2500 heimili færast úr því að eiga ekkert eigið fé í fasteign sinni yfir í jákvæða eiginfjárstöðu.
Samanburður á aðgerðum ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks annars vegar og hins vegar stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna sýnir svart á hvítu að 110%-leið vinstriflokkanna hjálpaði fáum auðugum heimilum en skildi þau tekjulægri úti í kuldanum.
Vinstriflokkarnir munu vitanlega mótmæla aðgerðum ríkisstjórnarinnar fram í rauðan dauðann enda standa þeir berstrípaðir sem hjálparhellur auðmanna á meðan hægristjórnin bætir stöðu þeirra ungu og efnaminni.
Vegur þyngst fyrir fólk undir meðaltekjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það vantar bara tónlistina undir þegar maður les þetta hjá þér Páll. Annars hefði blaðafulltrúi ríkisstjórnarinnar eins hafa skrifað þennan texta.
Baldinn, 10.11.2014 kl. 15:52
Það þurfti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkinn til að standa við loforð Jóhönnu Sigurðardóttur um skjaldborg um heimilin. Merkilegt. Svo stendur Árni Páll í ræðustól á Alþingi og hrópar um óréttlæti. Af hverju stóð hann og restin af Samfylkingunni ekki við loforð Jóhönnu á sínum tíma. Eru ekki núverandi stjórnarflokkar að opinbera vilja- og máttleysi Norrænu velferðarstjórnarinnar og þeirra flokka sem að henni stóð?????
Tómas Ibsen Halldórsson, 10.11.2014 kl. 15:54
Það er umhugsunarvert og til skammar að ríkistjórn Jóhönnu og Steingríms hafi sett 40 milljarða í aðgerð fyrir aðeins 2500 aðila. Þótt núverandi aðgerð kunni að vera umdeild er hún mun skárri leið.
Gunnar Sigfússon, 10.11.2014 kl. 17:20
Sammála Gunnari og Tómasi. Það væri ekki verra ef ósk Baldins um tónlist væri meðfylgjandi og ætti alveg við.
Elle_, 11.11.2014 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.