Föstudagur, 26. september 2014
Einkaframtakið lagði Ísland í rúst
Áður en einkaaðilum er afhent landið og miðin er rétt minna á að einkaframtakið svokallaða ber stærsta ábyrgð á hruninu. Einkaframtakið græðgisvæddi Ísland í útrás sem fékk rökrétta niðurstöðu í október 2008 með orðum Geirs H. Haarde forsætisráðherra ,,guð blessi Ísland."
Einkaframtakinu er ekki treystandi fyrir innviðum landsins, t.d. rekstri flugvalla, hafna og vega. Sjálfsagt er að leyfa einkaaðilum að reka úrelta flugvelli og vegaspotta hingað og þangað en ekki að hleypa þeim að mikilvægum og viðkvæmum samgönguæðum.
Einkaframtaksmenn eyddu á tíu árum eða svo öllu trausti. Það tekur um það bil 100 til 200 ár að sýna fram á að einkaframtakinu sér treystandi fyrir mikilvægri samfélagsstarfsemi.
Fjárfestar reki hafnir og flugvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.