Miðvikudagur, 17. september 2014
ASÍ gerir valdatilkall sem skuggaríkisstjórn
ASÍ hótar ríkisstjórninni verkfalli með þessum orðum
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar kalli á að aðildarfélög ASÍ undirbúi sig fyrir harðari deilur við gerð kjarasamninga en verið hafa í áratugi.
Á hinn bóginn er það svo að lífeyrissjóðirnir, sem ASÍ stjórnar ásamt Samtökum atvinnulífsins, eiga mörg stærstu fyrirtæki landsins. Aðildarfélög ASÍ eru þarf af leiðandi að fara í verkföll við sig sjálf.
ASÍ er ekki með umboð til að stjórna landinu heldur er það ríkisstjórnin með meirihluta alþingis á bakvið sig.
Ríkisstjórnin á ekki að hlusta á tilburði ASí til að krefjast valda sem skuggastjórnendur; ASÍ er ekki með neina burði til þess, ekki frekar en systursamtök þeirra, Samtök atvinnulífsins.
Á komandi vetri væri gott að fá verkföll upp á nokkrar vikur, vonandi sem víðast, til að draga úr óhóflegum hagvexti. Á meðan ASÍ rífur fyrirtæki í eigu lífeyrissjóðanna á hol með innistæðulausum kaupkröfum á ríkisstjórnin ekki svo mikið sem depla auga í þágu ASÍ.
Gylfi: Verður að tryggja tekjur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvers vegna skilaru bara ekki þessari innistæðulausu launahækkun sem þú fékkst fyrir skömmu Páll?
.
Hlakka til í að taka þátt í verkalýðsaðgerðum næstu mánaða ef bara til að reyna brenna upp launahækkanir þínar í verðbólgu báli.
Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 17.9.2014 kl. 22:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.