Fimmtudagur, 14. ágúst 2014
Trú, menning og RÚV
Nokkur munur er á því að umgangast kristni, og önnur trúarbrögð, sem menningarfyrirbæri annars vegar og hins vegar sem trú. Trúmaður lítur vitanlega á trú sína sem veigamikinn þátt í menningunni en trúleysinginn getur notið siðboðskapar og jafnvel helgihalds kirkjunnar án þess að trúa.
RÚV var til skamms tíma miðstöð menningar, sem rækti skyldur sínar við kristni líkt og önnur menningarfyrirbæti, t.d. bókmenntir.
RÚV telur ekki lengur þörf á að sinna kristnum menningararfi með sama hætti og áður. Núna skal kristni flokkuð með önnur trúarbrögðum. Rökin eru þau að morgunbænir og andakt séu ,,barn síns tíma."
RÚV er líka barn síns tíma.
Orði kvöldsins og Morgunbæn hætt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Seljum Rúv og leyfum þessu ódauðlega fólki að finna sér vinnu annarsstaðar.
Ragnhildur Kolka, 14.8.2014 kl. 13:25
Eru bænir trúarlegar eða menningarlegar? Eða útvarpsmessur?
Skeggi Skaftason, 14.8.2014 kl. 13:56
Einkennilegar spurningar hjá Skeggja,sem “veit" alltaf manna mest og best.
Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2014 kl. 15:19
Já seljum þetta skrímsli sem snarast og setjum okkur lög um fjölmiðla sem ógna ekki lýðræðinu eins andstæðingar þess nota RÚV svo samviskulega til.
Hrólfur Þ Hraundal, 14.8.2014 kl. 18:26
Er ekki einfaldast að trúaðir finni sinn " eina sanna" trúarkokteil á netinu?
Snorri Hansson, 16.8.2014 kl. 15:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.