Þriðjudagur, 15. júlí 2014
Gyðingleg vangá í Gaza - arabísk morð í Ísrael
Tatar læknir í Gaza segist í viðtengdri frétt hafa spurst fyrir hvers vegna Ísraelar gerðu honum þann óleik að sprengja híbýli fjölskyldunnar. Spurningin ber með sér Tatar læknir gerir ráð fyrir að Ísraelsher sé á eftir hryðjuverkamönnum Hams en ekki friðsömum borgurum þegar þeir sprengja hús og annað á Gaza.
Fyrirspurn Tatar læknis væri ekki gerð nema vegna þess að viðurkennt er að þegar Ísraelsher drepur borgara þá er það af vangá ekki af yfirlögðu ráði.
Hamas-samtökin og önnur sambærileg stunda á hinn bóginn morð á óbreyttum borgurum að yfirlögðu ráði: hvort heldur með því að myrða óvopnaða unglinga, flugskeytum eða sjálfsmorðsárásum í strætisvögnum.
Nokkur munur er á drápum af vangá og morðum.
En við erum fórnarlömbin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enn er beðið eftir því að flugskeyti Hamasmanna drepi Ísraelsmann en á sama tíma eru tæplega tvö hundruð fallnir á Gaza og hátt í þúsund særðir.
Ísraelsmenn ákváðu að drepa lögreglustjóranna á Gaza, hittu hann mjög vel og drápu fjölskyldu hans í leiðinni. Mikil vangá, þetta.
Ómar Ragnarsson, 15.7.2014 kl. 23:09
Ómar: Hamas einfaldlega neitar að hætta. Hvað villt þú að Ísraelsmenn geri? Leyfi þeim að drepa nokkra af sanngirnisástæðum?
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 15.7.2014 kl. 23:41
En eru ekki heimildirnar um fjölda fallinna á Gaza komnar frá yfirvöldunum þar: Hamas-samtökunum? Má treysta því, að þar sé þá hvergi oftalið?
Sjálfur vil ég, að Ísrael hætti sínum loftárásum, eins og sést af grein minni : Hvers vegna ekki vopnahlé milli Hamassamtakanna og Ísraels? -- skaðinn á óbreyttum borgurum og mannfallið er óverjandi, jafnvel þótt lítið sé miðað við mannfórnirnar af völdum múslimskra öfgaafla í Sýrlandi, Írak og víðar.
Einnig á ég nýja smáfærslu og umræður hér: jvj.blog.is/blog/jvj/entry/1411090/
Jón Valur Jensson, 16.7.2014 kl. 01:52
Egyptian TV Hosts Slam Hamas Leaders: We Are Sick and Tired of You
Þetta er hér, samantekt úr egupzkum fjölmiðlum:
https://www.youtube.com/watch?v=7VtENBF_yjo
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 18.7.2014 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.