Föstudagur, 6. júní 2014
Samfylkingarskáldið og Breivik
Hallgrímur Helgason sló í gegn sem samfélagsrýnir þegar hann bar blak af Jóni Ásgeiri og útrásarauðmönnum vegna gagnrýni þáverandi forsætisráðherra Davíðs Oddssonar
Við sem heima sitjum og skiljum ekki andúð forsætisráðherra gagnvart bestu viðskiptasonum Íslands
Hallgrímur tilheyrir Samfylkingunni í pólitík og lífssýn. Hann auglýsir innræti sitt og félaga sinna með samsetningi um að framsóknarmenn séu samstofna fjöldamorðingjanum Breivik.
Orðræða samfylkingarfólks vegna moskumálsins verður æ meira öskur með stöðugt minna innihaldi. Breivik-samsetning Hallgríms mun um ókomin ár standa sem minnisvarði um lágkúrulegasta pólitískan kúltúr seinni tíma sögu - samfylkingarómenninguna.
Athugasemdir
Hallgrímur Helgason hefur hreiðrað um sig í göturæsinu þaðan sem hann nær best til sinna manna.
Ragnhildur Kolka, 6.6.2014 kl. 09:09
Hefur Hallgrímur ekki verið eða er á listamannalaunum sem eru á fjárlögum,það er ekki amalegt að geta tekið þátt í því að styrkja svo magnaðan listamann með skatt greiðslum sínum.
Kristján Jón Sveinbjörnsson, 6.6.2014 kl. 09:46
Hvorir skldu nú vera tengdari Breivik;
Bændasamtök íslands eða
"svart-stakka-krumminn" Hallgrímur?
http://www.visir.is/ma-ekki-maeta-i-kjolfotunum/article/2011708189913
Jón Þórhallsson, 6.6.2014 kl. 10:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.