Þriðjudagur, 29. apríl 2014
Lög á verkföll sem raska allsherjarreglu
Enginn ferðamaður kemur til Íslands vegna flugvallarstarfsmanna á Keflavíkurflugvelli. Og engir ferðamenn koma til landsins vegna flugmanna Icelandair. Þessar stéttir eru á hinn bóginn í þeirri stöðu að ógna allsherjarreglu; stöðugri atvinnu í landinu og stöðugu gengi krónunnar.
Verkföll eru ekki mannréttindi, eins og forseti ASÍ heldur, enda geta stéttarfélög ekki átt mannréttindi, aðeins einstaklingar. Samfélagið, á hinn bóginn, á kröfu til þess að alþingi og ríkisstjórn viðhaldi allsherjarreglu.
Ef rök flugvallarstarfsmanna og flugmanna fyrir hærri launum halda ekki, þá á að setja lög boðuð verkföll.
Allt útlit fyrir allsherjarverkfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
"Enginn ferðamaður kemur til Íslands vegna flugvallarstarfsmanna á Keflavíkurflugvelli."
Þetta hljómar undarlega þegar við á Egilsstöðum teljum átta fullhlaðnar rútur koma til landsins með Norrænu og ótal einkabíla.
Þetta sýnir bara hvað umræðan er sjálflæg, bara út um gluggann á 101 Reykjavík.
Benedikt V. Warén, 29.4.2014 kl. 14:18
Góður þessi, er það ekki partur að því að viðhalda allsherja reglu að leyfa ekki stéttarfélögum að ræna þúsundir einstaklinga pening sem þau greiddu fyrir þjónustu, það er skólagjöld í framhaldsskólum?
Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 29.4.2014 kl. 16:34
Þetta er bráðfyndið. Páll agnúast mikið útí 101 Reykjavík, einhverra hluta vegna. Núna er Benedikt búinn að setja hann í þann flokk.
Elfar Aðalsteinn, Páll gæti kannski svarað þér með því að leggja út af Animal Farm eftir George Orwell: „Allir launþegar eru jafnir, en sumir launþegar eru jafnari en aðrir."
Wilhelm Emilsson, 29.4.2014 kl. 21:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.