Sunnudagur, 27. apríl 2014
Eini ESB-þingmaður XD hafnar Benedikt J.
Ragnheiður Ríkarðsdóttir er eini þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem greiddi atkvæði með ESB-umsókn Össurar og Samfylkingar 16. júlí 2009. Ekki einu sinni Þorgerður Katrín var nógu sannfærður ESB-sinni til að greiða atkvæði með umsókninni.
Að Ragnheiður skuli fyrirfram hafna rétt óstofnuðum ESB-flokki Benedikts Jóhannessonar, Sveins Andra og Þorsteins Pálssonar er kjaftshögg fyrir þá félaga.
Nýi hægriflokkur ESB-sinna situr uppi með Jórunni Frímannsdóttur sem helsta þungavigtarmanninn úr röðum sjálfstæðismanna og nær pundið í henni varla fjaðurvigt.
Benedikt og félagar unnu ekki heimavinnuna sína. Fáeinir standa þeir alsberir á pólitískum víðavangi og þykjast fjöldahreyfing. Aulahrollur.
Ekki á leið úr Sjálfstæðisflokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Benedikt og Sveinn skemmta skrattanum.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 27.4.2014 kl. 14:32
Sæll kæri Páll.
Er ekki Vilhjálmur Bjarnason einnig ESB maður eins og Ragnheiður Ríkharðsdóttir ?
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 27.4.2014 kl. 16:20
Enda lítið gagn að fimmtu herdeild utan flokksins.
Jónatan Karlsson, 27.4.2014 kl. 16:27
Í FLOKKNUM má bara hafa eina skoðun, þ.e. skoðun flokksins.
Jón Ingi Cæsarsson, 28.4.2014 kl. 09:21
Jón Ingi.
Minnkaðu lyfjaskammtinn !
Þeir sem ganga í stjórnmálasamtök þeir ganga í þau samtök sem komast næst stjórnmálalegum skoðunum viðkomandi. S'iðan reynir viðkomandi að hafa góð áhrin innan þess flokks sem hann skipaði sér í. Svo fer viðkomandi á þing fyrir hönd flokks síns til að fylgja eftir samþykktum stefnumálum flokssins sem viðkomandi tók sjálfur þátt i atkvæðagreiðslu um. Sé hann ekki sammála stefnumálum flokksins á hann að koma sér í þann flokk sem er þá að fylgja stefnu sem samrýmist hans eigin.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.4.2014 kl. 13:47
Fyndinn núna, Jón Ingi. Þekkti ekki þessa hlið. Það er heimsfrægt að í flokki kattasmalanna er h-a-r-ð-bannað er vera með neina skoðun, nema foringinn.
Elle_, 28.4.2014 kl. 18:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.