Föstudagur, 25. apríl 2014
Jarðýtur á bílskúra í vesturbænum
Herferð Samfylkingar og vinstrimanna gegn samgöngum tekur á sig æ róttækari myndir. Fyrir þrem vikum var tilkynnt um skipulagstillögur sem í reynd loka Reykjavíkurflugvelli. Í dag eru fréttir af fyrirhuguðu eignarnámi á bílskúrum í vesturbænum - til að jafna þeim við jörðu með jarðýtum svo þétta megi byggðina.
Að þétta byggð með jarðýtum er lýsandi fyrir aðferðafræði vinstrimeirihlutans í borginni. Við höfum valdið, segja þeir í ráðhúsinu, og ætlum að beita því með góðu eða illu.
Eina vörn almennings í höfuðborginni er að nota atkvæðisréttinn borgarstjórnarkosningunum í næsta mánuði og segja við borgaryfirvöld: hingað og ekki lengra.
Ráðist á rótgróið hverfi Vesturbæjar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, Páll, valdið er vandmeðfarið. Fólk afhendir valds- sprotann til mistækra draumóramanna og veit síðan ekki hvaðan á það stendur veðrið fyrr en búið er að róta upp í tilveru þess, fjölskyldulífi og friði almennt. Svona á að reyna að hafa af Reykjavík flugvöllinn, en fólk hlýtur að andmæla þegar það sér hvernig gengið er á rétt þess.
Nú erum við ekki „bara“ að tala um klúður á Hofsvallagötu og í Borgartúni, það var Dagur A. Núna er það allur pakkinn. Vinsamlegast kynnið ykkur hvernig pakkinn er sem Dagur B. ætlar að færa ykkur.
Ívar Pálsson, 25.4.2014 kl. 08:06
Ívar það er ekki verið að færa okkur. Og Páll, að nota atkvæðisréttinn er að kasta perlum fyrir svín. Allir sjá að klíkufólkið keppist við að djöflast sem mest í fólki sem bara sýnir hversu hugmynda fátæktin er komin langt og hvernig komið er fram við okkur. Henda klíkunni út með handafli er það einasta sem dugar í dag, það erum við búin að sjá all harkalega Páll minn.
Eyjólfur Jónsson, 25.4.2014 kl. 11:01
Það þarf að blása í glæðurnar frá Guðna Ágústsyni og safna þeim saman sem ætluðu að fylgja honum í framboði og eða öðrum sem deila skoðunum gegn kratastóðinu sem vaðið hefur uppi í borgarmálunum. Viljinn er allt sem þarf.
Benedikta E, 26.4.2014 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.