Fimmtudagur, 10. apríl 2014
Margrét Pála, andmenntastefna og hamingjan
Í skólum samfélags, hvort heldur þess íslenska, breska, danska eða þýska, birtast ríkjandi áherslur í menntun og uppeldi. Ríkjandi viðhorf er að börn og ungmenni eigi að sækja formlegt nám og útskrifast með prófgráðu í iðmennt, starfsmennt eða háskólagrein.
Sumir geta ekki eða vilja ekki fylgja ríkjandi viðhorfi og þeir einfaldlega hætta í skóla. Sumum vegnar vel í lífinu án prófa og öðrum síður. Prófgráður ráða ekki hamingju fólks eða velsæld.
Margrét Pála er uppeldisfrömuður sem einatt þvælir hamingjunni inn í menntamál. Niðurstaða hennar er að sökum þess að til er hamingjusamt fólk án langskólanáms og annað fólk vansælt með prófgráður þá ættum við að tileinka okkur andmenntastefnu sem felst í því að lofsyngja afbrigðin frá ríkjandi viðhorfum.
Athugasemdir
Það er varla von að þú áttir þig á hvað er verið að tala um Páll þannig að þessi pistill þinn er skiljalegur með það í huga.
Jón Ingi Cæsarsson, 10.4.2014 kl. 18:08
Burtséð frá pistlinum, hvað skilur þú Jón Ingi? Nema kannski skítkast? Ef þú ætlaðir að segja eitthvað, komst það engan veginn til skila.
Elle_, 10.4.2014 kl. 18:37
Margrét Pála er augljóslega mjög á móti miðstýringu, en þegar maður horfir á fyrirlestur hennar þá er ljóst að henni er greinilega mikið í mun um að miðstýra þeim sem eru að hlusta á hana. Og í Hjallastefnunni þurfa allir að vera í uniformi, ekki satt?
Wilhelm Emilsson, 11.4.2014 kl. 03:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.