Sunnudagur, 16. febrúar 2014
Gísli Marteinn er 101-spyrill
Gísli Marteinn Baldursson er talsmaður pólitískra lífsgilda sem kenna má við 101 Reykjavík. Hann er andstæðingur landsbyggðar, tekur hagsmuni verslunarinnar fram yfir hag framleiðenda. Pólitík Gísla Marteins litaði spurningar hans til forsætisráðherra.
Að öðru leyti gekk Gísli Marteinn erinda þeirra sem reyna að draga upp þá mynd af forsætisráðherra að hann biðjist undan gagnrýni. Sigmundur Davíð svarar því sem að honum er beint og þeir sem gagnrýna forsætisráherra, háskólaprófessorar, talsmenn Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs verða að þola andsvör.
Forsætisráðherra er með fínan húmor eins og kom fram í síðustu setningu hans í þættinum. Það er stórkostleg framför frá síðasta forsætisráðherra Framsóknarflokksins.
Ekki nýr ráðherra á næstu vikum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvað hefur þú fyrir þér í því að Gísli Marteinn sé andstæðingur landsbyggðarinnar? Eru þeir sem vilja flugvöllin burtu úr miðborginni sérlegir andstæðingar landsbyggðarinnar? Er það skilgreiningin á óvinum landsbyggðarinnar?
Jón Kristján Þorvarðarson, 16.2.2014 kl. 19:00
Gísli Marteinn talaði eins og hann væri almannatengill á launum hjá Högum. Og Hagar eru í herferð gegn landbúnaði.
Páll Vilhjálmsson, 16.2.2014 kl. 19:38
Gisli Marteinn er bara malbiksdrengur og aktar samkvæmt þvi ..og hefur engann veginn þekkingu eða getu til að stjórna umræðu þætti sem slikum ( þarf ekki þennann siðasta til )...og ef hann hugsaði málið gaumgæfilega myndi hann hætta og viðurkenna vanmátt sinn ...enda mjög undarlegt þegar hann kom aftur til starfa hja Rúv !
rhansen, 16.2.2014 kl. 19:44
Páll, voðalega paranoja er þetta gagnvart 101 Reykjavík. Svo ég vitni í forsætisráðherran okkar: „Róaðu þig nú aðeins niður". En þér finnst það kannski ekki dæmi um „fínan húmor" þegar það er sagt við þig?
Wilhelm Emilsson, 17.2.2014 kl. 03:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.