Föstudagur, 14. febrúar 2014
Sigmundur Davíð stóðst prófið
Forsætisráðherra stóðs prófið sem var lagt fyrir hann á þingi Viðskiptaráðs. Spurt var hvort Sigmundur Davíð yrði leiksoppur helstu samtaka hrunverja og gleypti hráar ráðleggingar milljónkrónafólksins.
Forsætisráðherra tók afstöðu gegn Viðskiptaráði í veigamiklum atriðum og snupraði ráðið fyrir yfirgang gagnvart niðurstöðu lýðræðislegra kosninga.
Staðfesting á því að Sigmundur Davíð stóðst prófið er að formaður Viðskiptaráðs buktar sig og beygir eftir hirtinguna.
Athugasemdir
Furða mig sifellt á þegar eg rekst á að fólk haldi Forsætisráðherra koma af fjöllum i einhverjum málum ....er menn ekki i lagi ????
rhansen, 15.2.2014 kl. 22:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.