Stórveldapólitík í Evrópu

Úkraína er á barmi borgarastyrjaldar vegna deilna um hvort landið eigi að halla sér til vesturs, í átt að Evrópusambandinu, eða í faðm rússneska bjarnarins. Austurlandamæri Evrópusambandsins eru ekki skilgreind heldur togast þau og teygjast eftir valdahlutföllum stórvelda. 

Fyrir hundrað árum var önnur togstreita um landamæri Evrópu vesturveldanna og Rússlands. Serbar, sem voru skjólstæðingar Rússa, vildu stækka veldi sitt á kostnað tvíríkisins Austurríkis-Ungverjalands. Metnaður Serba var neistinn sem kveikti fyrri heimsstyrjöld.

Úkraína er leiksoppur Evrópusambandsins og Rússlands. Hvort um sig stórveldið vill auka áhrif sín og völd á kostnað hins. Þannig er stórveldapólitík rekin frá árdögum. Úkraína er smáþjóð í þessu samhengi, þótt mannfjöldinn þar sé 45 milljónir.

Ísland er hvorki landfræðilega né sögulega aðili að valdastreitu meginlandsstórveldanna í Evrópu og ætti að halda sér í öruggri fjarlægð, m.a. með því að standa utan Evrópusambandsins.


mbl.is „Eins og landið skiptist í tvennt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband