Laugardagur, 31. ágúst 2013
Vanþekking menntamálaráðherra
Nemendur eru í augum menntamálaráðherra hagstærð sem hægt er breyta með pólitískri yfirlýsingu. Samtök atvinnulífsins vilja stytta þann tíma sem nemendur eru í framhaldsskólum og Illugi Gunnarsson dansar með án þess að vita almennilega hvers vegna og það sést á málflutningi hans.
Í vikunni sagði ráðherra í RÚV að hann vissi ekki hvort það þyrfti að breyta lögum til að stytt námstíma framhaldsskólanema. Þess þarf ekki. Allir fjölbrautaskólar landsins bjóða upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs og sumir bekkjaskólar einnig, t.d. Kvennaskólinn.
Þorri nemenda tekur stúdentspróf á fjórum árum eða lengri tíma og vinna með náminu. Það skýtur skökku við að Samtök atvinnulífsins telja það ókost að framhaldsskólanemar kynnist atvinnulífinu. Menntamálaráðherra hefur ekki útskýrt hvers vegna hann leggst gegn því að ungt fólk vinni með skóla.
Illugi segist ætla að setja saman ,,hvítbók" um þetta áhugamál sitt. Það er þekkt aðferð úr erlendri stjórnsýslu þegar um flókin álitamál er að ræða að taka saman skýrslu, svokallaða hvítbók. Fáir erlendir stjórnmálamenn, sem vilja láta taka sig alvarlega, gefa sér niðurstöðuna fyrirfram, eins og Illugi gerir.
Stytting námstíma lögð fyrir ríkisstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.