RÚV rukkar svör fyrir Árna Pál

Árni Páll Árnason formaður Samfylkingar sendi bréf til Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra með spurningum um sérmál flokksins, ESB-umsóknina.

RÚV rukkar Gunnar Braga um svar við bréfinu í hádegisfréttum í dag og gefur til kynna að óhóflegur dráttur sé á svörum utanríkisráðherra. Upphaf fréttarinnar er svohljóðandi

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur ekki svarað spurningum Árna Páls Árnasonar formanns Samfylkingarinnar um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að gera hlé á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið.

Bréfið var sent utanríkisráðherra 19. ágúst, fyrir tveim dögum. 

Ekkert tilefni er of smátt fyrir RÚV til að koma höggi á ríkisstjórnina vegna ESB-umsóknar Samfylkingar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Linnulaus þráhyggja síðuhafa eða aurar í budduna fyrir ræpuna ?

Bæði ?

hilmar jónsson, 21.8.2013 kl. 20:12

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Guðlaugur Þór minnist ekki þessa mikla áhuga RÚV á svörum frá ráðherra þegar hann beið lón og don eftir svörum sem Ríkisendurskoðun þurft að endingu að toga út með töngum.

Ragnhildur Kolka, 21.8.2013 kl. 22:46

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það þarf að loka þessari stofnun, löglega í að minnsta kosti í eitt ár.

Hrólfur Þ Hraundal, 21.8.2013 kl. 23:37

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Akkurat,á þeim tíma réði stjórnarandstaðan ekki yfir opinberum svar/rukkurum,yfirþyrmandi í hverjum fréttatíma. Þeir máttu draga sem nú klaga.

Helga Kristjánsdóttir, 21.8.2013 kl. 23:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband