Fimmtudagur, 11. júlí 2013
2007-fjárlög enn víða í gildi
Á tímum útrásar stofnaði ríkissjóður til ýmissa útgjalda sem ekki standast í venjulegu árferði. Vinstristjórn Jóhönnu Sig. jók við, bætti nýjum stofnunum við, t.d. Fjölmiðlanefnd, og fjölgaði deildum og starfsfólki í öðrum stofnunum.
Utanríkisráðuneytið er bæði offjármagnað og ofmannað enda gekk fráfarandi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, rösklega fram í að taka upp stjórnkerfi milljónaþjóða á sviði utanríkismála.
Það er af nógu að taka til að færa ríkisreksturinn til samræmis við pólitíska forgangsröðun og umsýslu sem er í takti við stærð hagkerfisins.
Vantar 8.600 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.