Föstudagur, 26. apríl 2013
Fullveldisstjórn réttlætis og ábyrgðar
Samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, undir forsæti Bjarna Benediktssonar, er góður kostur fyrir þjóðina. Sjálfstæðismenn lofa ábyrgri fjármálastjórn og Framsóknarflokkurinn réttlæti. Það er hægt að samræma þessar áherslur.
Vinstriflokkarnir fá reisupassann hjá þjóðinni og algerlega óraunhæft að þeir komi að stjórnarmyndun.
Mestu skiptir að samstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks jarðar ESB-umsóknina.
Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Í pitsli hjá síðuhafa 25. apríl 2013 segir hann að Framsóknarflokkurinn sé best treystandi til að leiða næstu ríkisstjórn en núna þegar Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærri að þá sé Bjarni Benediktsson góður kostur fyrir þjóðina.
Friðrik Friðriksson, 26.4.2013 kl. 19:29
Nákvæmlega Friðrik. Síðuhafi hlýtur að skoðast sem nokkuð áttavilltur og fústreaður, svo vægt sé til orða tekið.
Á örugglega eftir að hampa Árna Páli áður en nótt er úti.
hilmar jónsson, 26.4.2013 kl. 22:10
Ég er sammála síðuhafa og vel alltaf toppinn.
Helga Kristjánsdóttir, 26.4.2013 kl. 23:17
Fæ ekki séð að Páll sé áttavilltur - hann kann, líkt og við hin, að hafa sínar óskir en áttar sig e.t.v. á góðum kosti í ljósi mögulegrar niðurstöðu kosninga. Friðrik og Hilmar átta sig ekki á stigum lýsingarorða, sýnist manni, en svo er að sjá hverjir fagna hverju í lok dags. Hvernig sem fer, mun landslagið breytast í stjórnmálunum og það er undir okkur komið að halda stjórnmálamönnum við efnið; minna þá á orð þeirra og bera saman við efndir.
Ólafur Als, 27.4.2013 kl. 07:00
Velkominn til baka Páll
Sigurður Þorsteinsson, 27.4.2013 kl. 07:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.